„Það er ekki útilokað að skötuselsákveðinu svokallaða verði frestað um einhvern tíma á meðan menn freista þess að ná samkomulagi enda er það markmiðið,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd. Miklar deilur hafa verið um nýtt frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
„Menn hafa engan áhuga á að fara í breytingar sem viðhalda því stríði sem ríkt hefur í þessari grein undanfarna áratugi,“ bætir Björn við.
Frumvarpið er nú til umræðu í sjávarútvegsnefnd og ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður afgreitt úr nefnd. Björn Valur segir að í umræðum á Alþingi, áður en málinu var vísað aftur inn í nefndina, hafi verið ræddar ýmsar breytingar sem þingmenn voru flestir á að þyrfti að koma til og segir Björn að tillit hafi verið tekið til þeirra.
Björn segir að nú sé ræddur sá möguleiki, ef svo fer að fresta þurfi skötuselsákvæði laganna, að komið verði til móts við þá sem veiða skötusel með öðrum hætti.
LÍÚ hefur gagnrýnt frumvarpið harðlega, þar á meðal skötuselsákvæðið sem gerir ráð fyrir að ríkið leigi sjálft út 2.000 tonna viðbótarkvóta á skötusel og verður því viðbótarkvóta ekki úthlutað beint til útgerða í samræmi við aflahlutdeild þeirra.
Aðspurður hvort þrýstingur frá LÍÚ sé ástæða þess að ákvæðið virðist nú stranda segir Björn Valur það af og frá.
„Þessu máli hefur öllu verið þvælt inn í umræðuna um stöðugleikasáttmálann og menn vilja ekki ógna honum. Ég tel það frekar ástæðuna fremur en einhver hræðsla við LÍÚ.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
