Talið er líklegt að eitrunarlifrarbólga tengist notkun á Herbalife-vörum og fjöldi jurta sem fólk neytir í góðri trú geta innihaldið efni sem valda lifrarskaða. Grænt te og Aloe Vera til dæmis. Þetta segir í nýrri fræðigrein sem birt er í Læknablaðinu og sagt var frá í hádegisfréttum RÚV.
Höfundar greinarinnar eru Magnús Jóhannsson, læknir og prófessor í lyfja- og eiturefnafræði, Sif Ormarsdóttir og Sigurður Ólafsson meltingarlæknar.
Í greininni segir frá fimm íslenskum sjúklingum sem höfðu neytt Herbalife í einn til sjö mánuði og greindust með einkenni eitrunarlifrarbólgu. Einkennin hafi horfið þegar neyslu efnanna var hætt. Einn sjúklinganna hafi farið aftur að taka Herbalife og sjúkdómseinkennin komið aftur upp.
Fram kemur í greininni að eitruð efni séu algeng í nátúrunni og geti valdið margvíslegum lifrarskaða eins og bráðri eða langvinnri lifrarbólgu, gallstíflu, æðaskemmdum eða jafnvel lifrarbilun og skorpulifur. Margar jurtir innihaldi efni sem geta valdið eitrunarlifrarbólgu, eins og grænt te, Aloe Vera drykkir, Ma-hunang og Kava. Íslenskar jurtir á borð við krossfífla og hóffífla geti einnig orsakað þetta.
Rannsóknin tók til áranna 1999 til 2008. Sjúklingarnir hafi felstir tekið sömu vörur frá Herbalife. RoseOx og Herbalifeline sem innihalda jurtir sem vitað er að geta valdið lifrarskemmdum. Minnst er á í greininni að erlend rannsókn á tengslum lifrarskaða og Herbalife notkunar að tveir af 28 sjúklingum hafi þurft að fara í lifrarígræðslu.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
