Breski hönnuðurinn Stuart Hughes hefur hannað sjónvarp sem kostar litlar 300 milljónir króna. Eins og verðið ber með sér er ekki um neitt venjulegt túbutæki að ræða. Í tækinu eru 28 kíló af átján karata gulli og 72 eins karata demantar.
Þeir sem hafa áhuga þurfa þó að hafa hraðar hendur því Hughes ætlar einungis að framleiða þrjú tæki. Hughes rekur fyrirtæki í Liverpool á Englandi en það sérhæfir sig í að breyta tiltölulega venjulegum heimilistækjum í glæsilegan lúxusvarning.
„Þetta er ekki hannað fyrir meðaljóninn heldur er markhópurinn þeir sem eiga ógrynni af peningum,“ segir Hughes en sjónvarpið sem um ræðir er 55 tommur. Sjálfur segir Hughes að einn af hans helstu viðskiptavinum sé Stefano Gabbana, sem stofnaði tískufyrirtækið Dolce and Gabbana, sem kaupir reglulega iPod-spilara af honum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung