ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

„Ég óttast um líf systur minnar“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:00 › 19. mars 2010
Jóna Denny Sveinsdóttir deilir klefa með nokkrum öðrum konum að sögn Víctors Chávez höfðuðsmanni hjá fíkniefnalögreglunni.

Jóna Denny Sveinsdóttir deilir klefa með nokkrum öðrum konum að sögn Víctors Chávez höfðuðsmanni hjá fíkniefnalögreglunni.

Jóna Denny Sveinsdóttir situr í gæsluvarðhaldsklefa ásamt nokkrum konum í höfuðstöðvum perúsku fíkniefnalögreglunnar í Líma, að sögn Víctors Chávez, höfuðsmanns hjá lögreglunni, sem stýrir rannsókninni. Hún var tekin á flugvellinum með tvö kíló af kókaíni. Bróðir hennar segist hafa miklar áhyggjur af henni.

„Ég hef miklar áhyggjur af henni þarna úti. Maður veit að fangelsin þarna í Suður-Ameríku eru ekki upp á marga fiska,“ segir Þröstur Sveinsson, bróðir Jónu Denny Sveinsdóttur sem handtekin var með ríflega tvö kíló af kókaíni á Jorge Chávez-flugvellinum í höfuðborginni Líma í Perú.

Svo virðist sem Jóna, sem er 38 ára, fimm barna einstæð móðir, hafi ætlað að smygla eiturlyfjunum til Noregs, en þangað var ferðinni heitið þegar fíkniefnalögreglan stöðvaði hana. Hún hafði fest 2,026 kílógrömm af kókaíni framan á sig, innanklæða, í nokkrum pakkningum.

Lögreglumenn hjá perúsku fíkniefnalögreglunni, sem DV ræddi við, segja að Jóna geti átt von á 8 til 10 ára fangelsisdómi fyrir smygltilraunina.

Ítarleg umfjöllun um málið í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?