„Ég óskaði þess að þeir myndu drepa mig. Það er ljótt að segja það en þetta hugsaði ég stundum. Það andlega ofbeldi sem ég upplifði í grunnskóla var margfalt verra og áhrifameira en það líkamlega. Sérstaklega þegar til lengri tíma er litið,“ segir Sigurður Hólm Gunnarsson, baráttumaður gegn einelti, sem upplifði sjálfur langvarandi einelti í æsku.
„Ég var kallaður Siggi slef af bekkjarfélögum mínum allt þar til ég útskrifaðist úr grunnskóla. Ég lenti í einelti nær alla mína grunnskólatíð og það eru ekki ýkjur að sú reynsla hafi haft mikil áhrif á líf mitt og tilfinningar,“ segir Sigurður Hólm.
„Ég vonaðist stundum til þess að ég yrði barinn það alvarlega að ég myndi lenda uppi á sjúkrahúsi. Á slæmum dögum vonaðist ég jafnvel til að ég yrði drepinn. Þá loksins myndi fólk gera sér grein fyrir líðan minni, þá fyrst fengju ofbeldisseggirnir kannski makleg málagjöld,“ segir Sigurður Hólm.
Umfjöllun DV um einelti er haldið áfram í helgarblaði DV sem kemur út í dag. Sérfræðingar sem DV leituðu til segja mikilvægt að koma á óháðu teymi sérfræðinga í eineltismálum sem hefur það hlutverk að koma þeim 4.500 börnum til bjargar sem upplifa einelti í grunnskólum. Að mati sérfræðinganna ber skólanum að tryggja öryggi nemenda í hvívetna. Þeir telja að flestir skólar reyni að sinna skyldu sinni en of mörg tilfelli séu þar sem skólarnir hafa hvorki getað stöðvar einelti né sinnt því að nokkru leyti. Slíkt getur að mati þeirra sérfræðinga sem DV leitaði til eyðilagt börnin til lífstíðar og í versta falli leitt til sjálfsvíga þolenda eineltis.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“