ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Banki blæs árshátíð af vegna fjárhags

17:25 › 19. mars 2010
Vegna fjárhagserfiðleika telja stjórnendur VBS ekki rétt að glæsileg árshátíð sé haldin undir merkjum fyrirtækisins. Til stóð að hún færi fram á Hótel Rangá sem hér sést baðað norðurljósum.

Vegna fjárhagserfiðleika telja stjórnendur VBS ekki rétt að glæsileg árshátíð sé haldin undir merkjum fyrirtækisins. Til stóð að hún færi fram á Hótel Rangá sem hér sést baðað norðurljósum.

Stjórnendur VBS fjárfestingabanka hafa ákveðið að blása af árshátíð bankans í ár. Til stóð að fara í ævintýraferð út á land en vegna slæmrar fjárhagsstöðu hefur verið hætt við hátíðina.

Samkvæmt þeim tilboðum sem lágu fyrir hefði kostnaðurinn verið nærri hálfri milljón króna og af því stóð til að bankinn greiddi helminginn. Þrjátíu manna starfsmannahópur VBS stefndi að því að halda árshátíðina á Hótel Rangá 27. mars næstkomandi þar sem gist yrði, borðaður veislumatur og skemmt sér með ýmsum hætti í sveitinni.

Aðspurður segir Jón Þórisson, forstjóri VBS, það hafa verið ákveðið að blása árshátíðina af og að starfsmenn íhugi að halda skemmtun í heimahúsi í staðinn. „Þessi áform hafa verið sett til hliðar en starfsmenn gera sér hugsanlega glaðan dag á eigin vegum. Þegar staðan er svona fannst okkur ekki við hæfi að þetta yrði haldið undir merki fyrirtækisins,“ segir Jón.

Yfir bankann hefur verið sett bráðabirgðastjórn en slæm fjárhagsstaða hans færði hann í faðm Fjármálaeftirlitsins.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.