Atli Rúnar Halldórsson, einn eigenda Ahygli ehf., mótmælir harðlega því sem fram kemur í kjallaragrein Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna, sem birtist í DV í gær. Þar gagnrýndi Atli auglýsingaherferð sem hann sagði úr smiðju LÍÚ, Athygli og Atla Rúnars.
Fyrirsögn kjallaragreinarinnar er: „Svei attan - LÍÚ, Athygli og Atli Rúnar.“ Þar sagði hann að réttlætiskennd sinni væri fullkomlega ofboðið vegna auglýsinganna.
Atli Rúnar hefur sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu:
Fyrning og fýlustrákur
„Mikið bullar þú í dag“, söng Rúnar heitinn Júl. forðum í barnagælu um fýlustrákinn. Laglínunni með tilheyrandi texta laust niður í kollinn við lestur greinar eftir Atla Gíslason alþingismann í DV á miðvikudaginn var, 17. mars. Þar eignar hann mér og fyrirtækinu sem ég á hækil í, Athygli ehf., heiður af auglýsingabálki í Viðskiptablaðinu og LÍÚ á að hafa borgað brúsann. Það hefur komið fram opinberlega áður að bálkurinn umræddi var ekki á vegum LÍÚ og ég verð hér með að vísa góðfúslega frá mér bæði hrósi og skömmum vegna auglýsinganna. Þær voru á ábyrgð Viðskiptablaðsins og þá liggur einfaldlega fyrir að hvorki Athygli né LÍÚ höfðu neitt með málið að gera. Þess vegna blasir við að bara í fyrstu málsgrein ritgerðar sinnar fer skrifarinn með fleipur í tvígang, sem er vel af sér vikið jafnvel þó alþingismaður eigi í hlut. Margföld ósannsögli er nefnd haugalygi í minni sveit.
Raunveruleikinn í þessu máli er nú ekki dramatískari en svo að þarna kusu frjáls félög og fyrirtæki að koma boðskap á framfæri á auglýsingasíðum blaðs og borga fyrir. Og hvað með það? Hafa Alþingismenn ekkert þarfara að gera nú um stundir en að fjasa og fleipra um auglýsingar í blöðum?
Atli Rúnar Halldórsson
Sjá einnig:
Réttlætiskennd Atla fullkomlega ofboðið vegna auglýsinga LÍÚ





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna