ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Saka LÍÚ um hótanir og ofríki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:21 › 18. mars 2010
Það logar allt í ráðgjafarnefnd sjávarútvegsráðherra vegna frumvarps um stjórn fiskveiða.

Það logar allt í ráðgjafarnefnd sjávarútvegsráðherra vegna frumvarps um stjórn fiskveiða.

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins (SGS) lýsir vonbrigðum yfir fjarveru Landssambands Íslenskra Útvegsmanna og Samtaka Fiskvinnslustöðva úr Ráðgjafanefnd sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnunarkerfið. Í ályktun SGS segir að það sé ekki vænleg leið til farsællar niðurstöðu og sátta að stunda hótanir og ofríki í stað málefnalegrar umræðu.

„Og sérstaklega ekki þegar horft er til þeirra sérhagsmuna sem útvegsmenn eru að vernda.“

SGS telur það hjóta að valda Samtökum atvinnulífsins áhyggjum hvernig stór samtök innan þeirra vébanda leyfi sér að nálgast viðfangsefnið í svo mikilvægu máli sem fiskveiðistjórnunarkerfið er.

„Þótt sjávarútvegsráðherra leggi fram lagafrumvörp, tengd fiskveiðistjórnunarkerfinu, þá réttlætir það engan veginn harkaleg viðbrögð útvegsmanna. Starfsgreinasambandið gerir hins vegar kröfu til þess að sjávarútvegsráðherra gefi nefndinni þann frið sem hún þarf til að ljúka málinu.“

Sjá einnig

Skötuselnum hugsanlega fórnað fyrir sátt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.