Kanínan sem hér sést er brennd og feldur hennar afar sviðinn eftir að hin 22 ára gamla Katey Barber kveikti í kofa hennar í bakgarði heimilis móður sinnar. Barber hafði verið að brenna föt í eigu kærasta móður sinnar í Cheadle Heath í Bretlandi þegar hún snéri sér að kanínukofanum.
Hún potaði í kanínuna með priki áður en hún henti brennandi pappír inn í kofann og lokaði. Þegar nærstaddir reyndu að grípa inn í brjálaðist hún og læsti þau inni í húsinu.
Barber, sem var ölvuð, hló kátt á meðan kanínan brann og öskraði upp fyrir sig: „Sjáið, kanínan logar.“
Hún hellti síðan vatni yfir hana til að slökkva í logunum.
Dýralæknar skoðuðu kanínuna, sem heitir Bunny, og sögðu þeir að hún myndi hljóta varanlega áverka og líklega aldrei ná sér að fullu eftir árásina sem átti sér stað í september í fyrra.
Barber er nú fyrir dómstólum vegna þessarar grimmúðlegu árásar en fram kom í réttarsal að hún hefði gist á heimili móður sinnar og kærasta hennar í Cheadle Heath í Stockport á meðan þau voru í fríi með litlu systur Barber sem á kanínuna. Sjálf en Barber frá Wythenshawe og játaði hún sök fyrir dómara á föstudaginn.
Hún gæti átt yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsi eða sekt upp á 20 þúsund pund þegar hún verður dæmd á þriðjudaginn næstkomandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu