ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Ók aftan á vinnuvél og hélt áfram för

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:30 › 18. mars 2010

Karlmaður ók aftan á vinnuvél í morgun á Vesturlandsvegi við Suðurlandsveg þar sem vinnuvélin var að störfum. Ökumaðurinn hélt áfram för sinni þrátt fyrir að áreksturinn hafi verið talsvert harður og bifreið hans skemmst.

Lögreglan hafði upp á ökumanninum, sem hafði þá ekið talsverða vegalengd, við Réttarholtsveg í Reykjavík.

Ökumaður var fluttur á sysadeild til athugunar en ekki lék grunur á um að hann væri ölvaður að sögn varðstjóra lögreglunnar.

Í morgun varð annar harður árekstur varð á Reykjanesbraut við Mjódd í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var tvennt flutt á slysadeild með sjúkrabíl og þriðji maðurinn fór á slysadeild til að láta athuga sig.

Bílarnir voru talsvert skemmdur og voru þeir fluttir á brott með kranabíl.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.