Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Íslenska konan, sem handtekin var á alþjóðaflugvellinum Jorge Chávez í Perú á mánudaginn, var með rúm tvö kíló af kókaíni í fórum sínu, samkvæmt perúska dagblaðinu Ojo.
Blaðið greinir frá því að konan hafi verið með 2,036 kíló af kókaíni í pakkningum sem hún hafði límt á sig innan klæða.
Eins og DV greindi frá í morgun hefur fjölskylda konunnar, sem er fimm barna móðir, ekkert heyrt frá henni frá því fréttir bárust þess efnis að hún hefði verið handtekin með fíkniefni á umræddum flugvelli.
Fram kemur í dagblaðinu að á sama tíma hafi spænsk kona, Inmaculada Fernández Fernández, ætlað til heimalands síns með ferðatösku sem innihélt 3,9 kíló af kókaíni. Ekki kemur fram hvort málin tengjast.
Nánar verður fjallað um málið í DV á morgun.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun