ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Hreiðar Már kominn á 17 milljón króna Audi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:00 › 18. mars 2010
Audi S8 kostar um sautján milljónir króna í Lúxemborg og er flaggskip Audi-bílaframleiðandans.

Audi S8 kostar um sautján milljónir króna í Lúxemborg og er flaggskip Audi-bílaframleiðandans. DV-samsett mynd

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, fjárfesti fyrir stuttu í nýjum Audi S8 sem kostar um sautján milljónir króna í Lúxemborg. Hreiðar Már er nú búsettur þar í landi og rekur fyrirtækið Consolium.

Heimildir DV herma að vinir hans í Lúxemborg hafi orðið dolfallnir þegar þeir sáu nýja bílinn sem hann fjárfesti í. Bíllinn sem um ræðir er með 370 hestafla vél. „ A8 með 12 strokka vél setur hæstu viðmið í afli í flokki lúxusbíla. Hann er samnefnari fyrir afl og fágun í hæstu hæðum. A8 12 strokka er flaggskipið í A8-línunni og sameinar fyrrnefnda kosti á sérlega eftirtektarverðan og heillandi máta,“ segir á vefsíðu Audi hérlendis sem Hekla er umboðsaðili fyrir.

Hreiðar Már tilkynnti að hann hygðist flytja til Lúxemborg sumarið 2009 stuttu eftir að útibú Kaupþings þar í landi var selt til bresku Rowland-fjölskyldunnar. Bankinn heitir nú Banque Havilland. Ekki er vitað hversu margir vinna hjá Consolium í Lúxemborg. Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, rekur fyrirtækið með Hreiðari Má en þeir fluttu báðir til Lúxemborgar sumarið 2009. Miðað við bílakaup Hreiðars Más virðist fyrirtækinu allavega ganga vel.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.