Guðni Ágústsson einu armbandsúri fátækari eftir sundferð í síðustu viku. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer mikinn í pistli sem birtist í dag í Dagskránni, fréttablaði Suðurlands. Þar upplýsir Guðni lesendur um það að hann hafi orðið fórnarlamb vasaþjófs í Sundhöll Selfoss.
„Úrinu mínu var stolið úr vasa mínum í sundlauginni í síðustu viku um hábjartan dag í útiklefanum góða,“ skrifar Guðni sem segir að um helgan grip sér að ræða fyrir sig sem sé sárt saknað.
„Stálúr, sortin „Guess“ Úr sem Margrét mín gaf mér í afmælisgjöf,“ skrifar Guðni sem vill endurheimta úrið úr klóm hins fingralanga vasaþjófs með loforði um syndaaflausn.
„Renndu því innum blaðalúguna hjá mér góði, þá verða syndir þínar fyrirgefnar.“
Pistil Guðna má lesa í PDF-útgáfu blaðsins með að smella hér. Pistillinn er á blaðsíðu 14.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs