Íslenski Víkingalottómilljónamæringur sem í gær deildi fyrsta vinning með tveimur öðrum mætti á skrifstofur Íslenskrar getspár í eftir hádegi í dag með vinningsmiðann sem gert hefur hann 66,4 milljónum ríkari.
Vinningshafinn heyrði í útvarpinu í hádeginu að miðinn hefði verið seldur hjá N1 og hringdi í eiginmann sinn sem sagði henni hverjar væru vinningstölurnar. Í ljós kom að hún var með réttan miða og var fljót að koma til Getspár með miðann.
Viðkomandi var í hálfgerðu áfalli en fyrsta hugsun sem kom upp í huga hennar var að greiða niður skuldir, njóta lífsins og taka sér gott sumarfrí.
Vinningurinn kemur í góðar þarfir hjá þessari fjögurra manna fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu sem samkvæmt upplýsingum frá Getspá er með bæði langtíma- og skammtímaskuldir sem hún getur nú losað sig við.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“