ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Fíngerðir karlmenn vinsælir í velmegunarlöndum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:30 › 18. mars 2010
Konur í velmegunarlöndum girnast fremur fíngerði karla líkt og Justin Timberlake.

Konur í velmegunarlöndum girnast fremur fíngerði karla líkt og Justin Timberlake.

Hvort kvenmenn laðist að hraustum eða fíngerðum karlmönnum gæti farið eftir heilsu þeirra. Í nýrri rannsókn, sem nær til kvenna í þrjátíu löndum, kemur fram að konur sem lifa í fátækum löndum velji fremur hraustlega karlmenn en konur sem lifa í velmegunarlöndum laðast frekar að fíngerðum karlmönnum.

Vísindamenn á bakvið rannsóknina segja muninn liggja í eðlishvötum kvenna. Konur sem lifa í fátækum og sjúkdómahrjáðum löndum velja fremur hraustlega karlmenn sem geta veitt þeim heilbrigð börn, á meðan konur í velmegunarlöndum velja fremur fíngerða karlmenn því þeir séu líklegri til að vera betri skaffar og feður barna þeirra.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.