ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Dularfulla fyrirtækið átti ekki fyrir þóknun

16:20 › 18. mars 2010
Rússnesk Sukhoi-orrustuþota. E.C.A. vill 20 slíkar hingað til lands til að geta boðið upp á vopnlausar heræfingar.

Rússnesk Sukhoi-orrustuþota. E.C.A. vill 20 slíkar hingað til lands til að geta boðið upp á vopnlausar heræfingar.

„Við tjáum okkur aldrei um einstaka umsækjendur hjá okkur en það sem hægt er að segja er að þeir eru í skilum í dag,“ segir Valdís Aðalsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, sem hefur haft til umfjöllunar hjá sér hvort herþotur E.C.A. Program uppfylli kröfur Flugöryggistofnunar Evrópu (EASA). Heimildir DV herma að illa hafi gengið að innheimta greiðslur frá fyrirtækinu vegna umsóknar þess í upphafi.

Séríslenskt regluverk þarf fyrir starfsemina
Flugmálastjórn er að meta umsókn hollenska fyrirtæksins E.C.A. Program um að skrásetja um 20 rússneskar orrustuþotur hér á landi. Verið er að meta hvort flugrekstur óvopnaðra orrustuþotna falli undir regluverk EASA og Íslands um flugmál. Valdís segir ljóst að hún falli ekki undir regluverk EASA enda engin fordæmi fyrir starfsemi sem þessari í Evrópu svo hún viti til. Í raun þurfi séríslenskt regluverk fyrir verkefni af þessu tagi. Þetta sé ekki aðeins spurning um lofthæfi vélanna, heldur einnig hæfi til flugreksturs og skrásetningar véla af þessu tagi á íslenskt flugrekendaskírteini. Valdís segir rangt sem komið hafi fram í fjölmiðlum í dag að þessi leyfi hafi þegar verið veitt.

Aðspurð hvort slíkt þýddi einhverja tilslökun á regluverki segir Valdís svo ekki vera. „Það er ekki verið að tala um að það verði nein tilslökun á regluverki heldur er það þannig að regluverkið nær ekki yfir þetta. Flugöryggi yrði aldrei ógnað.“

Loforð um 200 milljarða króna fjárfestingu
Eins og fram hefur komið hefur hið dularfulla fyrirtæki E.C.A., sem skráð er með höfuðstöðvar í átta þúsund manna smábænum Hoogerheide í Hollandi, viljað koma hér upp vopnlausri hernaðaræfingaaðstöðu frá því síðasta haust. Ónafngreindir hollenskir og bandarískir aðilar, sem sumir hafa bakgrunn í hernaði, koma að eignarhaldi fyrirtækisins. Forstjóri E.C.A. Melville ten Cate sagði í Fréttablaðinu í gær að áformuð fjárfesting fyrirtæksins hér á landi yrði 200 milljarðar og íslensk störf myndu skapast í kringum uppsetningu þotuflotans á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið vill síðan leigja þær til hernaðaræfinga.

Vandræðagangur með greiðslu
Eins og áður segir þarf Flugmálastjórn meðal annars að skoða hvort orrustuþotur þessar standist almennar lofthæfiskröfur EASA og gera athugasemdir ef eitthvað má betur fara. Rukkað er fyrir þá vinnu af hálfu Flugmálastjórnar og hefur vinna við þessa athugun staðið yfir í nokkra mánuði. Heimildir DV herma hins vegar að E.C.A. hafi gengið illa að standa í skilum á þeim greiðslum í upphafi ferlisins.

Heimildir DV herma að fyrirtækið, sem nú lofar 200 milljarða króna fjárfestingu á Suðurnesjum, hafi þurft að reiða fram nokkrar milljónir í upphafi sem hafi skilað sér illa. Upphaflega hafi greiðslum verið lofað sem ekki komu og síðan send kreditnúmer sem engin heimild var á.

Aðspurð um þessi vanskil segir Valdís Aðalsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, að Flugmálastjórn geti ekki tjáð sig um einstaka umsækjendur. „En það sem er hægt að segja er að þeir eru í skilum í dag.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.