ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Brutust inn til að stela sígarettukartonum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:20 › 18. mars 2010

Tveir menn voru handteknir um hálf fjögurleytið í nótt en þeir höfðu brotist inn í verslunina Rangá við Skipasund. Vegfarandi sá til mannanna er þeir brutu sér leið inn og tilkynnti til lögreglu.

Þegar lögregluna bar að garði voru mennirnir að troða sígarettukartonum í poka og handtók lögreglan mennina.

Voru þeir færðir í fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.