Íslenskt já takk! Frumvarp ÁRna mun ekki hjálpa honum persónulega enda kveðst hann vera með bílalán í íslenskum krónum. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra hefur vakið athygli vegna áforma sinna um að leggja fram nýtt frumvarp þar sem meðal annars verður tekið á vanda þeirra sem eru að sligast undan háum bílalánum.
Miðast hugmyndir ráðherra að því að láninu yrðu færð niður að 110 prósent af verðmæti bifreiðanna sambærilegt þeirri leið sem bankarnir hafa verið að bjóða fólki í yfirveðsettum fasteignum.
En hvernig bílalán skyldi Árni Páll vera með?
Í svari við fyrirspurn DV segir Árni að hann hafi verið með bíla á myntkörfulánum frá árinu 2000 til 2004 og svo aftur frá árunum 2004 til 2007.
„Keypti mér bíl síðasta í ársbyrjun 2008 og tók þá bílalán í íslenskum krónum. Það er mjög viðráðanlegt,“ segir í svari ráðherrans. Frumvarp hans sem vakið hefur upp bæði jákvæð og einhver neikvæð viðbrögð í samfélaginu mun því að öllum líkindum ekki gagnast ráðherranum persónulega.
Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því í vikunni að íslenska ríkið gæti átt yfir höfði sér málsókn frá Deutsche bank nái hugmyndir Árna Páls um afskriftir á bílalánum fram að ganga. Þýski bankinn er nefnilega stærsti lánveitandi Lýsingar sem færi í þrot. Árni sjálfur hefur lýst því yfir að hann óttist ekki slíkar málshöfðun enda hafi ríkisstjórnin góð rök fyrir aðgerðunum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun