ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

3 mánaða fangelsi fyrir dónaleg SMS í Dúbaí

08:37 › 18. mars 2010
Frá Dúbaí. Ósiðlegt athæfi er sjaldan liðið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Frá Dúbaí. Ósiðlegt athæfi er sjaldan liðið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Röð SMS-skilaboða af kynferðislegum toga varð til þess að indverskt par hefur verið dæmt í þriggja mánaða fangelsi í Dúbaí. Í dómnum segir að kynlífsskilaboðin gefi augljóslega til kynna að parið hafi ætlað sér að „syndga“ með því að stunda kynlíf utan hjónabands með framhjáhaldi sem er stranglega bannað í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Parið starfar í flugáhöfn Emirates-flugfélagsins og fengu þau þriggja mánaða fangelsi hvort. Dómurinn segir að ekki hafi verið næg sönnunargöng fyrir því hvort parið hafi í raun sofið saman en ef svo hefði verið hefðu þau fengið þyngri dóma.

Upp komst um textaskilaboðin í skilnaðarmáli konunnar, sem er 42 ára, og eiginmanns hennar.

Dómur sem féll í málinu í desember kvað á um að parið skyldi sæta sex mánaða fangelsi og vera sent úr landi að afplánun lokinni en áfrýjunardómstóll stytti dóminn og snéri við úrskurðinum um að vísa þeim úr landi.

Löggjöfin í borgríkinu Dúbaí þykir fremur afslöppuð miðað við önnur arabaríki en yfirvöld geta þó átt það til að refsa duglega fyrir þá sem sakaðir eru um að reyna um of á það umburðarlyndi.

Fyrr í þessari viku sagðist breskt par ætla að áfrýja eins mánaðar fangelsisdómnum sem það hlaut fyrir að kyssast á veitingastað. Frægt er þegar annað breskt par var árið 2008 dæmt í þriggja mánaða fangelsi fyrir meint kynferðismök á strönd Dúbaí. En sá dómur var síðar látinn niður falla eftir hörð viðbrögð breskra stjórnvalda.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.