Að sögn Sabrinu Sforza Galitzia sem rannsakað hefur handrit og verk Leonardos da Vinci er að finna vísbendingar um heimsendaspá da Vincis í veggmynd hans, Síðustu kvöldmáltíðinni. Leonardo da Vinci spáði því að heimsendir yrði 1. nóvember 4006.
Sabrina segir að hálfmánaglugginn sem er fyrir miðju fyrir ofan veggmyndina af Jesú og lærisveinum hans hafi að geyma „stærðfræðilega og stjörnuspekilega“ ráðgátu sem hún hafi ráðið
Sabrina segist hafa komist að því að da Vinci hafi séð fyrir heimsendi í „alheimsflóði“ sem ætti að hefjast 21. mars, 4006, og ljúka 1. nóvember sama ár. Að sögn Sabrinu Sforza Galitzia sýndu skjöl að da Vinci trúði að þetta flóð myndi varða „nýtt upphaf mannkyns“.
„Það fyrirfinnst da Vinci-lykill – hann er bara ekki sá sem Dan Brown gerði vinsælan,“ sagði Sabrina Sforza Galitzia í viðtali við ítalska dagblaðið La Repubblica. Da Vinci-lykill Dans Brown snerist um ættboga Maríu Magdalenu og Jesú Krists og núlifandi afkomendur þeirra, leynireglu og Opus Dei.
Í bók sinni ýjar Dan Brown að því að manneskjan Jesú á hægri hönd sé ekki Jóhannes lærisveinn heldur María Magdalena, sem hafi borið barn Jesú undir belti þegar hann var krossfestur og því viðhaldið kyni Jesú.
Samkvæmt kenningu Sabrinu snýst lykill da Vincis um hvorki meira né minna en heimsendi þó hans sé enn til þess að gera langt að bíða.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung