Milestone fór út í víxilútgáfu til að fjármagna sig í lok árs 2007. Þá höfðu tugir erlendra banka neitað félaginu um lán.
Í skýrslu Ernst & Young um starfsemi eignarhaldsfélagsins Milestone er greint frá því að Milestone hafi farið í víxilútgáfu fyrir 6,2 milljarða króna í október 2007, eftir að félagið komst í veruleg fjárhagsleg vandræði, og að Glitnir hafi verið umsjónaraðili víxilútgáfunnar. Víxlarnir voru liður í fjármögnun Milestone og var það eignastýringardeild Glitnis sem meðal annars fjárfesti í víxlunum fyrir hönd margra viðskiptavina sinna.
Margir af þessum fyrrverandi viðskiptavinum Glitnis hafa gert kröfur í þrotabú Milestone út af fjárfestingunni í víxlunum sem eignastýringardeild Glitnis fór út í að þeim forspurðum og munu einhverjir þeirra vera að hugsa um að höfða mál á hendur bankanum. Í viðtali við DV á síðasta ári sagði einn viðskiptavinurinn sem tapaði milljónum á fjárfestingunni: „Ég er hrikalega reiður út í þá... Það hvarflaði ekki að mér að ég ætti eitthvað í Milestone.“
Víxilútboðið fór því fram þegar Milestone vantaði tilfinnanlega lausafé til að standa í skilum.
Í skýrslu Ernst & Young kemur fram að 1,7 milljarðar króna hafi Milestone notað til að greiða upp aðra víxla og að 3 milljarðar hafi verið notaðir til að greiða inn á lánið hjá Morgan Stanley vegna fjárfestingarinnar í Glitni. Sú innborgun átti sér stað í lok nóvember 2007. Heildarinnborgunin á lánið hjá Morgan Stanley nam rúmum 6 milljörðum króna.
Glitnir sá því um víxilútboð fyrir hönd stórs hluthafa í Glitni svo þessi sami hluthafi gæti borgað inn á lán sem veitt var fyrir hlutabréfum í Glitni. Viðskiptavinir Glitnis voru að hluta til látnir fjármagna þessa endurfjármögnun á hlutabréfum sem voru í eigu eigenda Milestone. Ef endurfjármögnunin hefði ekki átt sér stað hefði Þáttur International getað misst bréfin í veðkalli frá Morgan Stanley. Víxilútgáfan þjónaði því hagsmunum eigenda Þáttar International og Glitnis en fór þvert á hagsmuni þeirra viðskiptavina Glitnis sem voru látnir fjárfesta í víxlunum. Glitnir þurfti svo á endanum að endurfjármagna lán Milestone hjá Morgan Stanley í febrúar 2008 og voru Vafningsviðskiptin búin til vegna þessarar endurfjármögnunar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna