ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Þúsundir íslenskra barna þjást

10:37 › 17. mars 2010
Þúsundir íslenskra barna þjást vegna eineltis.

Þúsundir íslenskra barna þjást vegna eineltis.

Tíunda hvert barn í grunnskólum þjáist vegna eineltis. Það eru ríflega 4.500 börn sem þannig líður illa í skóla og upplifa einelti tvisvar eða oftar í mánuði. Þetta er niðurstaða nýrrar íslenskrar rannsóknar. Þá kemur einnig í ljós að nærri 8.000 börn hafa upplifað einelti af einhverju tagi.

Þessi 8.000 börn hafa ýmist upplifað að vera uppnefnt, orðið fyrir særandi athugasemdum, verið baktalað, orðið fyrir einelti í gegnum netið, verið ógnað, grín verið gert að því, peningar teknir af því, eigum barnsins stolið, það verið lamið eða útilokað frá öðrum nemendum.

Strákar verða frekar fyrir einelti en stelpur. Miðstigsnemendur frekar en á unglingastigi. Margir þeirra nemenda sem ekki eru lagðir í einelti óttast að verða lagði í einelti. Stór hluti nemenda telur kennara lítið gera til að koma í veg fyrir einelti. Helmingur þolenda hefur upplifað langvarandi einelti. Líðan unglingsstúlkna fer versnandi.

Allt um einelti í DV í dag.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.