ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Skellti nýfæddu barni í bökunarofn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:40 › 17. mars 2010

Bandaríkjamaðurinn Larry Long reykti kannabis í vinnunni á sunnudag í Kentucky, fór heim til kærustu sinnar og nýfædds barns, drakk þar viskí og endaði daginn á því að skella barninu í bökunarofninn á heimilinu.

Barninu varð ekki meint af verunni í ofninum því slökkt var á honum og hurðin hálf opin. Larry Long ákvað þó að hafa samband við geðdeildina í Kentucky þegar ölæðið rann af honum og hann hafði áttað sig á því hvað hann hafði gert. Hann var handtekinn skömmu seinna fyrir vanrækslu.

Eftir að Long kom heim þá sat hann að drykkju í þo nokkurn tíma eftir að barnsmóðir hans og sonur höfðu farið í háttinn. Móðirin vaknaði seinna um nóttina við grátinn í barninu sem hafði þá verið í ofninum í nokkra klukkutíma.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.