Rúmlega 1500 milljónir króna voru lagðar inn á reikning eignarhaldsfélagsins Milestone í Glitni af reikningum tryggingafélagsins Sjóvá á fyrstu sex vikum ársins 2008 vegna þess að staðan á reikningi félagsins var orðin neikvæð. Milestone, sem var eigandi tryggingafélagsins, var þá komið í veruleg rekstrarvandræði og gat ekki staðið við skuldbindingar sínar. Karl og Steingrímur Wernerssynir voru eigendur Milestone og Sjóvá.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í 200 blaðsíðna skýrslu endurskoðendafyrirtækisins Ernst og Young sem unnin var fyrir skiptastjóra Milestone, Grím Sigurðsson, og kynnt var á kröfuhafafundi félagsins á mánudaginn. Erindi fundarins var að kynna þær 22 málshöfðanir sem þrotabú Milestone íhugar að höfða gegn fyrri eigendum félagsins vegna ýmis konar viðskipta og að útdeila skýrslunni þar sem fjallað er á ítarlegan hátt um starfsemi Milestone. Skýrsla Ernst og Young er önnur skýrslan sem endurskoðendafyrirtækið vinnur um starfsemi Milestone. Sú fyrri var kynnt fyrir kröfuhöfum á síðasta ári. Þessi nýja skýrsla er mun ítarlegri og vandaðri og er fjallað um þætti í starfsemi Milestone sem ekki er rætt um í fyrri skýrslunni.
Í skýrslunni eru tilgreindar færslur af bankareikningum Sjóvá og inn á bankareikning frá 8. janúar 2008, en reikningurinn hafði fyrst lent í mínus degi áður. Endurskoðendur Ernst og Young segja að Sjóvá, og önnur dótturfélög Milestone, hafi eftir þetta „ítrekað lagt“ inn á reikninginn hjá félaginu „til að rétta stöðuna af“.
Í skýrslunni segir: „8/1/08 leggur Sjóvá inn 500 milljónir króna vegna neikvæðrar stöðu; 9/1/08 leggur Sjóvá inn 300 milljónir vegna neikvæðrar stöðu; Reikningurinn er neikvæður frá 10/1/08 til 23/1/08, en á því tímabili leggur Sjóvá inn alls 550 milljónir króna. Askar leggur inn 550 milljónir króna og Lyf og heilsa leggur inn 50 milljónir króna.“
Af þessu sést því að önnur dótturfélög Milestone, Askar og Lyf og heilsa, lögðu félaginu einnig til fjármuni til að rétta stöðu þess af en af millifærslunum sem nefndar eru í skýrslunni kemur fram að Sjóvá lagði móðurfélagi sínu til mestu fjármunina til að halda lífi í félaginu. Þessar millifærslur voru skilgreindar sem lán samkvæmt því sem segir í skýrslunni.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
