ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Sigurði G. vísað frá kröfuhafafundi af öryggisvörðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:03 › 17. mars 2010
Sigurður G. Guðjónsson.

Sigurður G. Guðjónsson.

Öryggisverðir meinuðu Sigurði G. Guðjónssyni lögfræðingi inngöngu á kröfuhafafund Fons hf. í dag. „Ástæðan er væntanlega sú að þeir telja sig vera búna að greiða kröfuna,“ segir Sigurður í samtali við DV.is. Hann fékk enga skýringu á þessu en telur þetta vera ástæðuna. Sigurður hefur sakað Óskar Sigurðsson skiptastjóra um að mismuna almennum kröfuhöfum í þrotabúi Fons hf.

Málavextir eru þeir að Sigurður á liðlega 200 þúsund króna kröfu í þrotabú Fons. Krafan var áður eign Skeljungs hf. Með því að Sigurður er kröfuhafi hefur hann aðgang eins og aðrir kröfuhafar að skiptafundi og fundum kröfuhafa í þrotabú Fons hf. sem Pálmi Haraldsson átti og stýrði.

Óskar sendi sína menn á fund Sigurðar nýverið og vildi greiða honum kröfu hans í þrotabúið að fullu í seðlum. Sigurður neitaði að taka við peningunum og segir að fé verði ekki borið á einstaka kröfuhafa í umslögum eins og aðstoðarmenn Óskars hafi reynt. „Ég bíð bara eftir að fá kröfuna réttilega greidda, þá er ég ekkert að hafa áhyggjur af þessu meir,“ segir Sigurður um málið og segir aðaláhyggjuefnið í þessu vera að menn fari ekki eftir lögum og reglum. Að fá kröfu greidda í seðlum úr umslagi er ekki eftir lögum um gjaldþrotaskipti, að sögn Sigurðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.