Hönnunarstjórinn segir lítið mál að laga stálvirkið áður en húsið verður tekið í notkun. DV-mynd Rakel Ósk
Ríkharður Kristjánsson, hönnunarstjóri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, segir að ryðskemmdir í stálvirki glerhjúpsins séu aðeins minniháttar galli sem verði lagfærður fyrir opnunina næsta vor. Hann segir að réttmætt væri að gagnrýna tæringuna ef stálið ætti ekki að standa innanhúss varið gleri á öllum hliðum.
Ryð hefur myndast í stáleiningum glerhjúpsins sem Ólafur Elíasson myndlistarmaður hefur hannað og mun umlykja Hörpu. Kínverskir iðnaðarmenn frá verktakafyrirtækinu Lingyun vinna nú hörðum höndum að samsetningu glerhjúpsins en aðstandendur húsbyggingarinnar hafa lýst verkinu sem því flóknasta í heimi.
Ríkharður segir að ryðið hafi myndast þegar boruð voru göt á málmeiningarnar sem síðan hafi smitað út frá sér. „Á norðurhliðinni hafa komið fram ýmsir gallar, eða skemmdir á stálinu sem verður hægt að laga seinna þegar þetta er komið upp, sem verður ekki vandamál. Það voru boruð göt sem á að festa glerið við og ekki málað innan í götin því við þurfum að bora í þau seinna og það smitaði aðeins ryðið út frá þeim og verður að vera svo þangað til við höfum gengið frá,“ segir Ríkharður.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir