„Ég bið framkvæmdastjórn LÍÚ að virða mér það til betri vegar að ég treysti mér ekki til að eiga orðastað við þá í heilsíðuauglýsingum. Ég hef ekki efni á því enda hef ég ekki aðgang að kvóta til að kosta þær,“ skrifar Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, í kjallara DV um það sem hann kallar áróðursauglýsingar LÍÚ í fjölmiðlum.
Atli segir Viðskiptablaðið hafa birt í síðustu viku sex auglýsingar í sama blaðinu frá LÍÚ úr smiðju Atla Rúnar Halldórssonar og fyrirtækis hans, Athygli. Einnig hafi birst auglýsing í Morgunblaðinu á besta stað auglýsing frá fyrirtækinu G. Run. vegna frumvarps sem auk annars gerir ráð fyrir skiptingu karfaafla milli djúpkarfa og gullkarfa.
„Áróður LÍÚ gengur út frá því að fiskur verði ekki veiddur á Íslandsmiðum eftir 20 ár og ríkisstjórnin stefni að því að leggja sjávarútvegsfyrirtæki og landsbyggðina í rúst. Það munar ekki um það. Til að leggja áherslu á þessar ranghugmyndir kýs almannatengslafyrirtækið Athygli í umboði LÍÚ að birta myndir sem sýna strönduð skip, krossa, auðn, depurð, sorgarástand o.fl. Ég sit ekki undir þessu, nú er mælirinn fullur. Réttlætiskennd minni er fullkomlega ofboðið,“ skrifar Atli.
Atli spur hvort að siðareglur auglýsenda verið felldar úr gildi. „Er svo komið fyrir athyglis- og almannatengslafyrirtækjum að tilgangurinn helgi meðalið? Mín skoðun er sú að þessar auglýsingar séu bjúgverplar sem skaði viðskiptavini Athygli,“ skrifar Atli sem segist ætla að svara LÍÚ með smáauglýsingum í DV, undir dálknum bátar og eða einkamál.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna