ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Peningahringekja Ingunnar, Sjóvá og Milestone

06:30 › 17. mars 2010
  • Skiptastjóri Milestone vill rifta viðskiptum sem snerust um greiðslur frá félaginu til Ingunnar Wernersdóttur.

    Skiptastjóri Milestone vill rifta viðskiptum sem snerust um greiðslur frá félaginu til Ingunnar Wernersdóttur.

Önnur viðskipti sem skiptastjóri Milestone vill höfða mál út af eru greiðslur til Ingunnar Wernersdóttur sem nema rúmum 5 milljörðum króna. Telur skipastjórinn að skoða verði greiðslurnar sem lán til Ingunnar þar sem ekkert hefði komið á móti milljörðunum inn í þrotabú Milestone. Hann telur að greiðslurnar til Ingunnar geti verið brot á lögum um einkahlutafélög.

Um þessi viðskipti segir meðal annars í skýrslu Ernst & Young: „Við viljum benda á að 600.000.000, sem Milestone ehf. greiddi til Ingunnar Wernersdóttur í byrjun desember 2006, voru teknar að láni frá Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og færðar á viðskiptareikningin til skuldar við Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. tóku umræddar 600.000.000 að láni hjá Ingunni Wernersdóttur, sbr. fjóra 150 milljóna lánasamninga um víkjandi lán þar um, dagsetta 1. desember 2006. Þannig fara 600.000.000 frá Ingunni Wernersdóttur til Sjóvá-Almennra trygginga hf. og þaðan til Milestone ehf. og að lokum þaðan, aftur til Ingunnar Wernersdóttur.“

Svo virðist því sem viðskipti Milestone við Ingunni hafi oft á tíðum verið hálfgerð hringekjuviðskipti þar sem peningar fóru úr einum vasa í annan og þaðan aftur til baka.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?