ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Nýtt gloss segir til um kynferðislega örvun kvenna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 17. mars 2010
Mood Swing Emotionally Activated Lip Gloss-ið segir til um kynferðislega örvun kvenna.

Mood Swing Emotionally Activated Lip Gloss-ið segir til um kynferðislega örvun kvenna.

Nýtt varagloss segir til um hvort konur séu kynferðislega örvaðar. Er glossið er borið á varir kvenna er það glært til að byrja með en verður rauðara eftir því hversu örvaðar konurnar eru. Glossinu fylgir litaspjald fyrir karlmenn til að átta sig á litabreytingunum en eru menn þó efins um að konur eigi eftir að nota þetta gloss.

Breski stefnumótaráðgjafinn Lorraine Adams segir glossið geta nýst karlmönnum afar vel ef þeir eru ekki vissir um tilfinningar kvenna til þeirra en hún er ekki svo viss um að konur eigi eftir að nota það. „Værir þú virkilega til í að karlmaðurinn sem situr við hlið þér í strætó viti hvort þú ert í „stuði“ eða ekki,“ spyr Adams réttilega.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.