ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Milestone vænt um lögbrot vegna Lyfja og heilsu

08:45 › 17. mars 2010
Karl og Steingrímur Wernerssynir voru eigendur Milestone en hugsanlegt er að lögbrot hafi verið framin í viðskiptum með hlutabréfin í Lyfjum og heilsu.

Karl og Steingrímur Wernerssynir voru eigendur Milestone en hugsanlegt er að lögbrot hafi verið framin í viðskiptum með hlutabréfin í Lyfjum og heilsu.

Í skýrslu endurskoðendafyrirtækisins Ernst og Young eru eigendur Milestone vændir um lögbrot í viðskiptum Aurláka með hlutabréf í Lyfjum og heilsu í mars 2009. Þetta eru meðal þeirra viðskipta sem skiptastjóri þrotabúsins, Grímur Sigurðsson, vill rifta á þeim forsendum að verið hafi reynt að koma eignum undan búi Milestone. Steingrímur og Karl Wernerssynir halda ennþá lyfjaverslunum þrátt fyrir gjaldþrot Milestone.

Í skýrslunni segir að tæpur milljarður af greiðslu Aurláka, sem Karl og Steingrímur eiga enn í dag, fyrir Lyf og heilsu hafi verið greiddur ári eftir að viðskiptin áttu sér stað í lok mars 2008. Um 2,5 milljarðar voru greiddir með yfirtöku skulda af hálfu Aurláka og 900 milljónir við fyrsta hentugleika, eins og segir í fundargerðinni þar sem salan var ákveðin. Aurláki greiddi kröfuna með skuldajöfnun en samkvæmt skýrslu Ernst og Young átti þetta sér ekki stað fyrr en tæpu ári eftir að viðskiptin áttu sér stað.

Í skýrslunni segir: „Það virðist því sem viðskiptin með kröfuna á Aurláka ehf., hafi í raun átt sér stað í febrúar 2009, en hafi hinsvegar verið dagsett aftur í tímann og færð á dagsetninguna 31. mars 2008. Ef það er raunin, er hér um að ræða brot á lögum um bókhald.“ Viðskiptin með kröfuna sem notuð var til að greiða þann hluta viðskiptanna sem ekki var yfirtaka skulda virðist því hafa átt sér stað löngu eftir að viðskiptin áttu sér stað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?