ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Kviðdómari stal kreditkorti af meðdómara sínum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:00 › 17. mars 2010
Saksóknarar stóðu Jennifer Mercado að verki er hún stal kreditkorti af John Postrik.

Saksóknarar stóðu Jennifer Mercado að verki er hún stal kreditkorti af John Postrik.

Kviðdómari í New York stal kredikorti af meðdómara sínum í réttarhöldum yfir manni sem var sakaður um að hafa stolið kreditkortum. Saksóknarar stóðu Jennifer Mercado að verki er hún stal kreditkorti af John Postrik.

Mercado notaði kortið í verslunum í grennd við dómshúsið í Bronx. Er Postrik uppgötvaði að kreditkort hans var horfið skoðaði hann kortayfirlitið og sá að það hafði verið notað í sömu verslunum og Mercado hafði verið í.

Postrik ákváð að láta dómara vita af þessum grunsemdum sínum. Saksóknarinn í málinu komst á snoðir um grunsemdir Postriks. Hann ákvað því að líta á myndbönd úr öryggismyndavélum verslana í grennd við dómshúsið. Sást Mercando þar greiða fyrir vörur með kreditkorti Postriks.

Mercado játaði að lokum að hafa keypt handtösku, gallabuxur og Nike Air Jordan skó með kredikorti Postriks en tók þó fram að Postrik hefði gefið sér leyfi til að nota kortið sitt því hann hefði verið að reyna við sig. Hún var að lokum rekin úr kviðdómnum og kærð fyrir þjófnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.