ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Guðjón Arnar: „Ég hef verið stífur“

21:00 › 17. mars 2010
Guðjón Arnar segir ósættið sem komið hefur upp í innsta kjarna Frjálslynda flokksins vera erfiðasta viðfangsefni sitt á sjö ára formannstíð.

Guðjón Arnar segir ósættið sem komið hefur upp í innsta kjarna Frjálslynda flokksins vera erfiðasta viðfangsefni sitt á sjö ára formannstíð. Sigtryggur Ari

Sjö ára formannstíð Guðjóns Arnars Kristjánssonar hjá Frjálslynda flokknum lýkur um næstu helgi. Hann tilkynnti síðastliðinn laugardag að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri. Vantraust er ekki ástæðan, segir Guðjón í samtali við DV, þrátt fyrir að flokkurinn hafi misst alla sína þingmenn í kosningunum á síðasta ári. Hann segir erfiðustu augnablikin í valdatíð sinni hafa verið átökin í innsta kjarna flokksins.

„Þetta er ákvörðun sem ég tók í raun og veru þegar ég bauð mig fram síðast sem formaður. Að þegar því formannstímabili væri lokið, sem átti reyndar að vera á næsta ári því við höldum landsþing á tveggja ára fresti, þá myndi ég ekki gefa aftur kost á mér. Ég tel eðlilegt að kosning til forystunnar fari nú fram á nýjan leik og nýtt fólk taki við,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson um þessa ákvörðun sína að sækjast ekki eftir því að starfa áfram sem formaður Frjálslynda flokksins. Landsþing flokksins fer fram um næstu helgi, ári fyrr en venjan er.

Guðjón hyggst sækjast eftir sæti í miðstjórn Frjálslyndaflokksins. Aðspurður hvort það gæti reynst nýjum formanni erfitt að stjórna flokknum ef Guðjón er en viðriðinn hann segir Guðjón nýjan formann flokksins þurfa að lúta stefnu flokksins sem sé mótuð á landsþingi.

„Ég er mjög stífur á að menn fylgi þeim stefnum sem mótaðar eru á landsþingum. Þar á að móta stefnuna. Fólk á að geta komið á landsþing vitandi að það er að móta stefnu tl næstu tveggja ára og að þeirri stefnu verði fylgt í öllum meginmálum. Við skiptum ekki bara allt í einu um kúrs í til dæmis afstöðu flokksins til mögulegrar aðildar Íslands að ESB af því að einhverjum manni finnst að við eigum að gera það. Sú stefnubreyting verður að fara fram á landsþingi.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.