ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Félagslegu íbúðirnar merktar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
05:12 › 17. mars 2010
Íbúar félagslegra íbúða kvarta yfir því að íbúðir þeirra séu sérmertkar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Íbúar félagslegra íbúða kvarta yfir því að íbúðir þeirra séu sérmertkar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Íbúðir Félagsbústaða eru sérmerktar þegar leigjendur flytja þangað inn en merkingin er rauðir límmiðar sem komið er fyrir á útidyrabjöllum og við inngang félagslegu íbúðanna. Þetta hefur valdið nokkurri kergju meðal íbúa.

Íbúar sem hafa búið um árabil í félagslegum íbúðum á vegum Félagsbústaða, en vilja ekki láta nafns síns getið, eru móðgaðir yfir því að vera sérmerktir og þannig aðgreindir frá öðrum íbúum fjölbýlishúsanna þar sem félagslegar íbúðir er oftast að finna. Í samtölum við DV lýstu þeir yfir vonbrigðum sínum því það geti verið nógu erfitt að þurfa að treysta á félagslega aðstoð þannig að ekki þurfi líka að vekja sérstaka athygli á því að umræddir íbúðar þiggi aðstoð frá hinum opinbera.

Sigurður Kr. Friðriksson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, staðfestir að félagslegar íbúðir á þeirra vegum séu sérmerktar en bendir á að það sé gert í upphafi þegar nýir íbúar eru að flytja inn. „Þetta er alveg rétt. Við setjum límmiða við hurðina og stundum á dyrabjöllurnar,“ segir Sigurður. Hann segir hins vegar ekkert mál að fjarlægja límmiðana.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.