Indverskur karlmaður er bara býsna stoltur af sínum tólf fingrum og fjórtán tásum sem komið hafa honum í metabækurnar.
Í stað þess að skammast sín hefur Haramb Ashok Kumthekar ávallt fagnað því og flaggað að hann sé öðruvísi.
Haramb, sem er 24 ára viðskiptafræðingur, fæddist með sex fingur á hvorri hönd og sjö tær á hvorum fæti.
Hann hefur þó ekki fengið met sitt staðfest af Heimsmetabók Guinness því tæknilega séð eru víst sumar af fingrum hans samvaxnir og telja því ekki sem eitt stykki hver.
Það er samlandi hans Devendra Harne sem er staðfestur methafi með tólf fingur og þrettán tær.
Hann er hins vegar viðurkenndur methafi í samsvarandi metabók Indverja, Limca Book of Records.
Þrátt fyrir að allar hans fingur og tær hafi sitthvort beinið þá getur hann hvorki hreyft sumar þeirra eða fundið fyrir þeim þar sem ekki allar hafa taugaenda.
Eina sem Haramb finnur ástandi sínu til foráttu er að hann á í erfiðleikum með að finna skó og hanska sem passa.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung