Faðir fjögurra mánaða stúlku sem lést með voveiflegum hætti fyrir fjórum árum svipti sig lífi eftir að hafa orðið fyrir aðkasti æsts múgs sem kenndi foreldrunum um andlát stúlkunnar. Nú er komið í ljós að telpan lést eftir að hafa fengið tífaldan lyfjaskammt fyrir mistök.
Foreldranir, Neil Jones og Maxine Winfield, þurftu að flýja heimili sitt í Barnsley eftir að nágrannar þeirra höfðu komist að þeirra niðurstöðu að þau bæru ábyrgð á andláti dóttur sinnar, Abbie. Brotist var inn á heimilið og það lagt í rúst. Barnafötum, leikföngum, skartgripum og öðrum munum var stolið. Meira að segja barnaskónum sem Abbie var í þegar hún lést.
Nokkrum vikum síðar svipti Neil Jones sig lífi vegna ofsóknanna.
Í dag komst dánardómstjóri að þeirri niðurstöðu að foreldrarnir hafi ekki átt neinn þátt í andláti dóttur sinnar þann 10. mars 2006. Réttarrannsókn í málinu hefur staðið yfir og í dag kom þar fram að röð læknamistaka hafi kostað Abbie, sem var með Downs-heilkenni, lífið.
Hún fékk tífaldan lyfjaskammt vegna mistaka læknis og lyfsala í Barnsley.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung