ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Facebook-fíkn varð leigumorðingja að falli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:11 › 17. mars 2010
  • Leigumorðinginn Pasquale Manfredi getur kennt Facebook-fíkn sinni um það að lögreglan á Ítalíu hafði hendur í hári hans.

    Leigumorðinginn Pasquale Manfredi getur kennt Facebook-fíkn sinni um það að lögreglan á Ítalíu hafði hendur í hári hans.

Leigumorðinginn Pasquale Manfredi getur kennt Facebook-fíkn sinni um það að lögreglan á Ítalíu hafði hendur í hári hans. Manfredi, sem gekk undir viðurnefninu „Scarface“, notaði netpung til að komast á Internetið. Lögreglan komst að því og gat því fundið út hvar Manfredi hélt sig í hvert skipti sem hann fór á netið.

Lögreglan réðst inn í íbúð Manfredi í Calabria á Ítalíu á sunnudag. Þar náðu þeir Manfredi er hann var að spjalla við félaga sinn í gegnum Facebook. Lögreglan hefur í kjölfarið ákveðið að nota Facebook-síðu hans til að leita að öðrum þekktum glæpamönnum úr tvö hundruð manna vinalista Manfredi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.