Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Nú í miðju pungakáfsátaki Krabbameinsfélagsins er gaman að segja frá því að miðasala er hafin á Eistnaflug, hina árlegu rokkhátíð sem haldin hefur verið í Neskaupstað frá árinu 2005. Rokk í þyngri kantinum er í hávegum haft á hátíðinni, sem fram fer 8. til 10. júlí, en nær allur skali rokktónlistarinnar er þó spannaður.
Hátíðin stendur frá fimmtudegi til laugardags og spilar tugur til tylft hljómsveita hvern dag. Mannfjöldinn í Neskaupstað hefur nær tvöfaldast þessa helgi frá því Eistnaflugið var sett á laggirnar og er mikið líf og fjör í bænum. Miðasalan fer fram á midi.is, en ekki hvar?





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar