ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Ein mesta ráðgáta Youtube- Myndband

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:22 › 17. mars 2010
Ben Folds til vinstri en Merton til hægri. Eru deildar meiningar um það hvort Ben Folds sé í raun Youtube-stjarnan Merton.

Ben Folds til vinstri en Merton til hægri. Eru deildar meiningar um það hvort Ben Folds sé í raun Youtube-stjarnan Merton.

Ein mesta ráðgáta veraldarvefsins í dag er hver leyndardómsfulli píanóleikarinn er sem semur lög um ókunnugt fólk á spjallsvæðinu Chat Roulette. Myndband af píanóleikaranum á vefsíðunni Youtube hefur slegið í gegn en þar sést hann semja lög á svipstundu um ókunnugt fólk á spjallrásinni.

Vinsældir myndbandsins gerðu það að verkum að netverjar fóru að velta fyrir sér hver píanóleikarinn væri. Var heimsfrægi tónlistarmaðurinn Ben Folds fljótlega bendlaður við að vera píanóleikarinn Merton.

Segja netverjar Merton syngja eins og Ben Folds, spila á píanó eins og Ben Folds og að auki líta út eins og Ben Folds.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.