ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Dularfullt fyrirtæki frá smábæ í Hollandi

14:50 › 17. mars 2010
Lentir á Íslandi? Heimasíða E.C.A. Programs skartar myndaseríu frá Íslandi.

Lentir á Íslandi? Heimasíða E.C.A. Programs skartar myndaseríu frá Íslandi.

Einkarekna hernaðarfyrirtækið E.C.A. Programs sem fjallað er um á forsíðu Fréttablaðsins í dag og hafði áður verið fjallað um í fréttum RÚV í október síðstliðnum virðist vera dularfullt fyrirtæki. Samtök hernaðarandstæðinga ítreka gagnrýni sína á fyrirtækið, sem er með höfuðstöðvar í smábæ í Hollandi, ekki er vitað hver á né hvar tvær meintar starfstöðvar þess í Evrópu eru. Skúffufyrirtæki segja samtökin.

Á vefsíðu fyrirtækisins kemur fram að það hafi verið stofnað árið 2007 á þeim grundvelli að koma á fót verktakafyrirtæki fyrir vopnlausar hernaðaraðgerðir. Árið 2010 verði samt þeirra ár þegar allt fer á fulla ferð með víkkun starfseminnar á Íslandi ef áform þeirra ganga eftir.

Dularfullt fyrirtæki með óljóst eignarhald og myndaseríu frá Íslandi á heimasíðunni
Fram kemur á heimasíðunni að fyrirtækið sé með tvær höfuðstarfstöðvar í Evrópu, án þess að þó sé tiltekið hvar þær séu.

Heimasíða fyrirtækisins skartar myndaseríu frá Keflavíkurflugvelli og nágrenni þrátt fyrir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að leyfa fyrirtækinu að starfa hér á landi. Í Fréttablaðinu í dag segir forstjórinn Melville ten Cate að íslensk stjórnvöld hafi dregið að taka pólitíska ákvörðun um að skrá hér tuttugu vopnlausar orrustuþotur fyrirtækisins.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru samkvæmt heimasíðu fyrirtæksins smábærinn Hoogerheide í Hollandi. Íbúafjöldi þess bæjar er rétt rúmlega 8000 manns.

Fram kemur í máli forstjórans í Fréttablaðinu í dag að eigendur E.C.A. Séu nokkrir ónafngreindir hollenskir og bandarískir einstaklingar sem sumir hafi bakgrunn úr hermennsku. Engir Íslendingar séu að baki fyrirtækinu sem hingað til, að sögn forstjórans, hefur rekið flutningaþjónustu fyrir heri víða um heim.

Skúffufyrirtæki sem aðrar þjóðir hafa hafnað
Samtök hernaðarandstæðinga vara við fyrirtækinu og segja málaliðaher sem þennan eitthvað „auðvirðilegasta fyrirbæri mannlegrar tilveru.“ Markmið rekstursins sé að þjálfa hermenn í að drepa fólk í fjarlægum og fátækum löndum. Allt tal um vopnleysi starfsmanna fyrirtækisins sé aumur fyrirsláttur þar sem þjálfun orrustuflugmanna og skipulagning heræfinga geti aldrei talist annað en hernaðarstarfsemi.

Samtökin segja ljóst að E.C.A. Program sé í dag „hálfgert skúffufyrirtæki og væntanlega leppur fyrir öflugari fyrirtæki.“ Fyrirtækið hafi sóst eftir aðstöðu fyrir starfsemi sína í Kanada en ekki fengið leyfi frá stjórnvöldum.

Í Fréttablaðinu í dag talar forstjóri E.C.A. Um að áformuð fjárfesting í kringum fyrirtækið hér á landi yrði 200 milljarðar króna og íslensk störf yrðu til.

Samtök hernaðarandstæðinga segja að þótt forstjóri fyrirtæksins tali drýgindalega um verkefni þess um víða veröld finnist um þau litlar heimildir og varar við ásælni þess í starfsstöð hérlendis.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.