ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Dæmdir fyrir líkamsárás með golfkylfu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:16 › 17. mars 2010

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag fjóra karlmenn í skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þar sem meðal annars golfkylfu var beitt við barsmíðar á einum manni.

Atvikið átti sér stað 15. júní 2008 við Kaffibarinn við Bergstaðastræti. Fjórmenningarnir veittust að manninum, sem er af erlendu bergi broti, með ítrekuðum hnefahöggum og spörkum í líkama og höfuð.

Forsprakki hópsins sem þyngsta hlaut dóm fyrir aðild sína í málinu mun þá hafa slegið fórnarlambið með golfkylfu í bak, síðu og handlegg en við höggin brotnaði kylfan í tvennt. Eftir það kastaði hann neðri helmingi kylfunnar í höfuð fórnarlambsins.

Fórnarlambið hlaut talsverða áverka eftir árásina.

Golfkylfumaðurinn var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásina. Hinir þrír sem voru með honum í för fengu 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

Þá var fórnarlambinu dæmdar 250 þúsund krónur í miskabætur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.