ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Bubbi segist vera lúinn streitari

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:07 › 17. mars 2010

Ljósmyndara Séð og heyrt var meinuð aðganga að afmælistónleikum Páls Óskars Hjálmtýssonar á NASA um síðustu helgi. Ritstjóri blaðsins, Eiríkur Jónsson, vekur máls á þessu á bloggi sínu og segir það undarlegt í ljósi þess að Séð og heyrt hafi hampað Páli Óskari svo gott sem vikulega í áratug, fyrir utan að leggja „réttindabaráttu samkynhneigðra lið svo um munar“, eins og Eiríkur orðar það.

Ekki er vitað hvers vegna ljósmyndaranum var bannað að mynda fagnaðinn en ljóst er að Bubbi Morthens hefur húmor fyrir atvikinu. Í athugasemd við bloggfærsluna segir popparinn: „Eiríkur svona svona þú getur altaf níðst á mér gömlum lúnum streitara.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.