Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Reykvíkingar geta fyrst litið til bjartari framtíðar þegar þeir losna við Framsóknarflokkinn í borginni. Óráðsíuframkvæmdir og óverjanlegar lántökur Reykjavíkurborgar er forrystumönnum flokksins að kenna og óskiljanlegt er að í nýrri fjárhagsáætlun borgarinnar sé þeirra ekkert getið.
Þetta er mat Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúar F-listans, sem gagnrýnir harðlega spillingu og óskynsamar lántökur borgarinnar sem forystumenn Framsóknarflokksins hafi beitt sér fyrir. Hann greiddi atkvæði gegn nýrri fjárhagsáætlun borgarinnar þar sem þar sé ekkert fjallað um lántökurnar.
Ólafur vonast til þess að Framsóknarflokkurinn nái engum manni inn í borgarstjórn í komandi kosningu og þá loks geti Reykvíkingar litið til bjartari framtíðar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun