ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

61,4 prósent þjóðarinnar á móti listamannalaunum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:55 › 17. mars 2010
Þráinn Bertelsson hefur farið mikinn síðustu vikur í umræðunni um listamannalaun.

Þráinn Bertelsson hefur farið mikinn síðustu vikur í umræðunni um listamannalaun.

Samkvæmt nýrri könnun MMR eru 61,4 prósent þjóðarinnar frekar eða mjög andvíg því að ríkið greiði listamannalaun. Stærsti hlutinn, 32,7 prósent, er mjög andvígur því.

MMR kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að ríkið greiði listamannalaun sem talsverð umræða hefur verið um undanfarið. 932 einstaklingar svöruðu og tóku 92,5 prósent afstöðu til spurningarinnar.

28,8 prósent aðspurðra sögðust frekar fylgjandi því að ríkið greiddi listamannalaun en aðeins 9,8 prósent sögðust mjög fylgjandi því.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.