ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Tryggvi hefur líka heimsótt Anabels

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:01 › 16. mars 2010
Tryggvi hefur kíkt á Anabels. Þegar góðærið var hvað mest árið 2007 og hann var forstjóri Askar Capital.

Tryggvi hefur kíkt á Anabels. Þegar góðærið var hvað mest árið 2007 og hann var forstjóri Askar Capital. Mynd: Heiða Helgadóttir

Útrásarvíkingarnir eru ekki einu Íslendingarnir sem farið hafa á Annabels Club í London en DV greinir frá því í dag að Bakkabræður hafi skemmt sér þar ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni fyrr í mánuðinum.

Þannig mun Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forstjóri Askar Capital, hafa skemmt sér á klúbbnum víðfræga árið 2007. Þá gegndi Tryggvi enn forstjórastarfinu í fjárfestingabanka þeirra Wernersbræðra og hefur örugglega ekki væst um hann á Annabels innan um allar stjörnurnar sem þar ala manninn að öllu jöfnu.

Eins og fram kemur í DV í dag skelltu Lýður og Ágúst Guðmundssynir sér á einkaklúbbinn Anabels í Mayfair í London fyrr í mánuðinum til að fagna því að nauðasamningar Bakkavarar hefðu verið samþykktir. Með þeim í för var Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings og núverandi íbúi í Lúxemborg, auk fleiri Íslendinga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.