Stúlkan fékk fyrir mistök tífaldan skammt af sýklalyfi fyrir mistök. Mynd tengist efni fréttar ekki beint
Móðir sjö ára gamallar stúlku hefur kært Árbæjarapótek til Lyfjastofnunar eftir að dóttir hennar fékk og innbyrti tífaldan skammt af sýklalyfinu Furadantin um helgina vegna mistaka í apótekinu.
Lyfið var ávísað vegna blöðrubólgu sem stúlkan fékk í síðustu viku og segir í Fréttablaðinu í dag að móðir stúlkunnar þakki sínum sæla fyrir að lyfið hafi ekki verið skaðlegra en raun ber vitni.
Haft er haft Rannveigu Gunnarsdóttur, forstjóra Lyfjastofnunar, að kannað verði hvað fór úrskeiðis og síðan óskað eftir viðbrögðum lyfsala.
Lyfjafræðingur Árbæjarapóteks segir sömuleiðis í samtali við blaðið að hann harmi mistökin og að allt verði gert til að slíkt endurtaki sig ekki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna