ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Stubbavaktir auka þunglyndi Huldu

11:05 › 16. mars 2010
Hulda segist ekki fá þá aðstoð sem hún þarfnist og þannig komist hún stundum ekki fram úr rúminu á morgnanna. Það hafi síðast gerst um síðustu helgi.

Hulda segist ekki fá þá aðstoð sem hún þarfnist og þannig komist hún stundum ekki fram úr rúminu á morgnanna. Það hafi síðast gerst um síðustu helgi. Mynd: Rakel Ósk Sigurðardóttir

Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi barst fyrir áramót mat læknis á andlegri líðan Huldu Magnúsdóttur, sem bundin er við hjólastól, eftir að sólarhringsþjónustu við hana var skert. Nágranni hennar, Kristín Þorsteinsdóttir, hefur áhyggjur af vinkonu sinni þar sem heilsu hennar hraki stöðugt.

„Mér finnst þetta orðið alveg ferlegt mál. Að mínu viti þarf Hulda sólarhringsþjónustu og það er líka mat læknis. Samt breytist ekkert og það finnst mér ákaflega skrítið,“ segir Kristín Þorsteinsdóttir, nágranni og vinkona Huldu Magnúsdóttur, sem bundin er hjólastól vegna fötlunar.

Hulda hefur undanfarna mánuði barist fyrir því að fá þá þjónustu sem hún segir sig nauðsynlega þurfa en að í september síðastliðnum hafi hún verið færð af sólarhringsvakt yfir á svokallaðar stubbavaktir. Þær vaktir segir Hulda innifela þrjár heimsóknir á dag en þess utan geti hún hringt eftir aðstoð, sem hún stundum fái og stundum ekki. Hulda er háð aðstoð til að komast á fætur á morgnanna og til að komast á salernið og segir hún þjónustuna því miður oft hafa brugðist þannig að hún komist ekki fram úr rúminu.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.