„„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Uppgjöf blasir við,“ skrifar Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðið í dag. Hann segir það úrræðalausan mann sem ekki sé til varðstöðu fallinn sem þannig talar.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag rifjar þingmaðurinn upp stúf úr Stjórnarsáttmála VG og Samfylkingar frá 10. maí í fyrra þar sem seir að ríkisstjórnin muni ekki velta vandanum yfir á þá verst settu í samfélagin né leggja byrðarnar á börnin með að skjóta vandanum á frest. „Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi.
Kristján segir Steingrím hafa játað að hann sé orðinn þreyttur á kjaftæði um að ríkisstjórnin uppfylli ekki lofroð sín.
„Ákall þjóðarinnar um úrbætur er að mati ráðherrans marklaust hjal. Skoðanasystkin Steingríms í þessum efnum eru örugglega enn færri en þau 1,8% þjóðarinnar sem greiddu atkvæði með samningum hans um Icesave.“
Kristján rifjar því næst upp áköll BSRB, Samtaka iðnaðarins, Samtaka atvinnulífsins og ASÍ um að grípa verði til aðgerða til bjargar heimilinum, efnahagslífinu og atvinnulífinu.
„Hvað veldur því að ríkisstjórnin bregst ekki við þessum áköllum?“ spyr þingmaðurinn í pistli sínum.
„Þreyttur maður leggur ekki eyrun við því sem við hann er sagt. Þreyttur maður gerir sjálfum sé og öðrum best með því að víkja.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna