Ásmundur Stefánsson er launahæsti starfsmaður Landsbankans með 1,5 milljónir króna á mánuði auk hlunninda upp á 200 þúsund krónur.
Starfsfólk skilanefnda og slitastjóran var með tvöfalt hærri meðallaun á mánuði en kollegar þeirra í bönkunum í fyrra. Dæmi eru um milljónalaun hjá skilanefndum en undir hálfri milljón hjá öðrum. Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag.
Þar segir að starfsfólk skilanefndar og slitastjóran Glitnis hafi verið með hæstu meðallaunin í bankakerfinu á liðnu ári. Meðallaun þar námu 874 þúsund krónum á mánuði. Ein lægstu meðallaun innan fjármálageirans hafði starfsfólk hjá Byr sparisjóði, 467.790 krónur á mánuði segir í blaðinu í dag.
Fram hefur komið áður í blaðinu að Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, er launahæsti starfsmaður bankans með 1,5 milljónir króna auk 200 þúsund króna í hlunnindi á mánuði. Nærri helmingi hærri laun en forsætisráðherra Íslands, Jóhanna Sigurðardóttir. Ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör hafa ekki fengist hjá hestu fyrirtækjum banka- og fjármálageirans.
Þá segir í blaðinu að þrátt fyrir launalækkun séu framkvæmdastjórar bankanna með í kringum eina milljón króna á mánuði. Blaðið hefur þá óstaðfestar heimildir fyrir því að starfsfólk skilanefnda og slitastjórna bankanna sé með allt upp undir tvær milljónir króna í mánaðarlaun.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli