Undanfarna mánuði hefur fjölgað þeim bandarísku ríkisborgurum sem handteknir eru vegna tengsla við róttæka íslamtrúarmenn og samtök þeirra. Nýjasta viðbótin eru tvær fráskildar bandarískar konur sem eiga það sammerkt að hafa leiðst
Fyrir helgi var Colleen LaRose, bandarísk kona á fimmtugsaldri, ákærð í Bandaríkjunum fyrir glæpi tengda hryðjuverkum, þeirra á meðal að hafa á netinu staðið að því að ráða nýliða til óhæfuverka utan Bandaríkjanna.
Collee, einnig þekkt sem Fatima LaRose, var handtekin í Fíladelfíu í október í fyrra og hefur aukinheldur verið sökuð um að hafa samþykkt að myrða sænska listamanninn Lars Vilks, en hann vakti reiði múslíma víða um lönd þegar hann teiknaði spámanninn Múhameð í hundslíki.
Colleen, sem er frá Pennsburg skammt frá Fíladelfíu, hafði gert sér ferð til Svíþjóðar til að uppfylla samninginn.
Samkvæmt yfirlýsingu frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu hafði Colleen LaRose, í félagi við fimm aðra, „ráðið menn í gegnum netið til að heyja ofbeldisfullt heilagt stríð í Suður-Asíu og Evrópu, og ráðið kvenfólk í gegnum netið sem hafði vegabréf og möguleika á að ferðast til annarra landa og veita heilögu stríði stuðning“. Nafnið sem Colleen LaRose gekk undir á netinu var Jihad Jane.
Ef Colleen verður sakfelld á hún yfir höfði sér lífstíðarfangelsi og einnar milljónar dala sekt.
Síðan árásirnar voru gerðar á Bandaríkin árið 2001 hefur bandaríska leyniþjónustan verið á varðbergi gagnvart þeirri ógn sem landinu stafar af íslömskum öfgamönnum. Sennilega hefur sú skoðun ekki verið ríkjandi að hættan gæti falist í leiðum fráskildum mæðrum í bandarískum smábæjum.
Um helgina var upplýst að önnur bandarísk kona hefði verið handtekin og um væri að ræða ljóshærða móður frá smábænum Leadville í Koloradó.
Jamie Paulin-Ramirez, þrjátíu og eins árs, sagði upp starfi sínu sem aðstoðarmaður á sjúkrahúsi í september í fyrra og lagði land undir fót með sex ára syni sínum til fundar við múslímskan karlmann sem hún hafði kynnst í gegnum netið.
Það næsta sem fjölskyldan frétti af henni var að hún hafði verið handtekin á Írlandi vegna rannsóknar á samsæri um að myrða Lars Vilks. Líkt og Jihad Jane er Jamie fráskilin og óánægð kona sem varði miklum hluta frítímans á netinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu