ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Kúaskít dreift í anddyri Íslandsbanka

14:45 › 16. mars 2010
Skítkast í anddyri Íslandsbanka í hádeginu.

Skítkast í anddyri Íslandsbanka í hádeginu.

Sem fyrr stóðu samtökin Nýtt Ísland fyrir bílalánamótmælum fyrir framan Íslandsbanka á Kirkjusandi í hádeginu í dag. Einhverjir sem slógust með í för með samtökunum ákváðu þó að ganga lengra í sínum mótmælum sem stóð til að yrðu friðsamleg. Var kúaskít dreift í anddyri Íslandsbanka.

Talsmenn Nýja Íslands harma aðgerðirnar og segja viðkomandi aðila ekki tengjast samtökunum.

„Samtökin Nýtt Ísland stóðu fyrir friðsamlegum mótmælum sem fyrr. Því miður virðist sem einhverjir hafi dreift skít í anddyri bankans. Það eru aðilar sem eru ekki tengdir okkur. Svona getur alltaf komið fyrir. Við hörmum slíkt en bendum almenningi á að bankakerfið er gerspillt sem áður,“ segir í svari forsvarsmanna samtakanna við fyrirspurn DV um málið.

Meðal gjörninga, fyrir utan hið sóðalega skítkast, sem boðið var upp á í hádeginu var táknrænt uppboð á Íslandsbanka og frumflutningur á nýju lagi hljómsveitarinnar Stjörnuryk til heiðurs NÍ. Samtökin sjálf vilja tileinka lagið Teiti Atlasyni, bloggara á DV.is.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.